LÖG ÍSLENDINGAFÉLAGSINS HRAFNAFLÓKA
1. Félagið heitir HRAFNAFLÓKI, félag íslendinga í Norður-Noregi. Lögheimili þess og varnarþing er í Tromsø, Noregi.
2. Félagið er opið öllum íslendingum og Íslandsvinum í Norður-Noregi. Heimilt er að veita öðrum, sem óska að gerast félagar, inngöngu og tekur stjórn félagsins afstöðu til þess hverju sinni.
3. Markmið félagsins er að efla samskipti íslendinga í landshlutanum. Ennfremur að veita nýkomnum íslendingum til fylkisins þær upplýsingar og þá aðstoð sem unnt er. Stefnt skal að minnst þremur samkomum á ári, þ.e.a.s. haustfagnaði, þorrablóti og þjóðhátíðarsamkomu.
4. Stjórn félagsins skal skipuð 6 mönnum; formanni, varaformanni, ritara, gjaldkera og tveim meðstjórnendum. Formaður skal ráða tveimur atkvæðum en aðrir stjórnarmenn einu. Stjórnin skal kosin á aðalfundi og meðlimir hennar skipta með sér verkum innbyrðis.
5. Aðalfundur félagsins skal haldinn á þorrablóti ár hvert. Dagskrá aðalfundar skal vera svohljóðandi:
a) Skýrsla stjórnar
b) Reikningar félagsins
c) Lagabreytingar
d) Kosning nýrrar stjórnar
e) Ákvörðun félagsgjalds
f) Önnur mál
6. Lög þessi öðlast þegar gildi.
Þannig samþykkt á Þorrablóti/Góugleði í mars 2004
|
|