ÞORRABLÓT OG AÐALFUNDUR

Íslendingafélagsins Hrafnaflóka í Tromsø verður haldið laugardaginn 28. febrúar 2009 í Slettaelva Grendehus (Karveslettveien 51 á Kvaløya) Aðalfundurinn hefst kl. 19.30. Borðhald byrjar að loknum fundi. Verð: NOK 300.-

Innifalið í verðinu er einn bjór, brennivínssnaps og Baileys/Cognac með kaffinu. Gosdrykkir og áfengislaus bjór er einnig til boða.
Drykkir verða ekki seldir á staðnum, en félagsmönnum er velkomið að taka með drykki.

Félagsgjald er 100 kr á meðlim. Námsmenn greiða 50 kr. Stjórnin mælist til að félagsgjaldið greiðist samtímis og þátttökugjaldið. Merkið greiðsluna Torrablot og félagsgjald 2009 og nafn/nöfn.

Þátttaka tilkynnist fyrir 15. febrúar til Berglindar: stjornin@hrafnafloki.org eða í síma 952 36 625.
Lagabreytingatillögur fyrir Aðalfund sendast á sama netfang, fyrir 15. febrúar 2009.


Þátttökugjald greiðist sem fyrst og ekki seinna en 16. febrúar til:

Íslendingafélagið Hrafnaflóki, Skagesundvegen 50, 9010 Tromsö

Reikningsnúmer: 4700 58 17907

Við bjóðum alla íslendinga og íslandsvini velkomna!